Um Ólaf Kristjánsson
Eigandi og eini tengiliður Netkynningar, frá fyrstu hugmynd að lokaafhendingu.
Netkynning er íslenskt fyrirtæki í eigu Ólafs Kristjánssonar, sem sérhæfir sig í myndbandsgerð, kennslu- og kynningarmyndböndum, ljósmyndun, beinum útsendingum, upptökum og eftirvinnslu, stafrænu kennsluefni og ráðgjöf um innleiðingu gervigreindar.
Netkynning vinnur fyrir fyrirtæki, stofnanir, félagasamtök og einstaklinga. Áherslan er á persónulega þjónustu, skýra verðlagningu, fagleg vinnubrögð og að einfalda flókin verkefni fyrir viðskiptavininn.
Þú ert í sambandi við sama tengilið í gegnum allt verkefnið (Ólaf sjálfan), sem þýðir enga milliliði og skýra ábyrgð frá upphafi til enda.
Nálgunin
Persónuleg þjónusta
Einn tengiliður í gegnum allt verkefnið, frá fyrsta samtali til afhendingar.
Breidd í reynslu
Reynsla af myndbandsgerð, kennslu og tækni, með skilning á því hvernig efni er gert einfalt og aðgengilegt.
Sveigjanleg þjónusta
Verkefni eru löguð að þörfum hvers viðskiptavinar, ekki öfugt.
Búnaður
Netkynning notar faglegan eigin búnað, meðal annars Blackmagic og Canon myndavélar, DJI-búnað með gimbal og dróna, þráðlausa Røde-hljóðnema og Adobe-hugbúnað. Búnaðurinn er þó tæki að markmiði en ekki markmiðið sjálft, enda skiptir ávinningur þinn af verkefninu alltaf mestu máli.
